6 vikna námskeið í handmótun. Miðvikudagskvöld. 21. okt.-25. nóv.
6 vikna námskeið í handmótun. Miðvikudagskvöld. 21. okt.-25. nóv.
5 á lager
Couldn't load pickup availability
Þetta námskeið í handmótun hentar öllum færnistigum.
Kennari: Anna Wallenius
Á þessu 6 vikna námskeiði leiðir Anna Wallenius þig í gegnum undirstöðuatriðin í handmótun. Farið verður yfir pulsutækni (coil), plötutækni (slab) og loks klíputæknina (pinch). Hvort sem þig langar að búa til bolla, kertastjaka eða jafnvel stærri vasa, eru allir þátttakendur hvattir til þess að gera tilraunir með efnið og þróa sínar eigin hugmyndir og vinnuaðferðir.
Tungumál: Kennslan fer að mestu fram á ensku, en Anna talar og skilur Íslensku umfram grunnfærni. Íslenskumælandi þátttakendur eru hjartanlega velkomnir og hægt er að spyrja spurninga á íslensku eða ensku.
Nemendur eru hvattir til að koma með nesti eða eitthvað til að næra sig. Hagkaup er einnig staðsett við hliðina á vinnustofunni.
Í lok hvers tíma tökum við öll þátt í að þrífa vinnustofuna. Nemendur þrífa rennslubekkinn sinn, verkfæri og vatnsfötu. Að lokum förum við nokkrar umferðir yfir gólfið í kringum vinnusvæðið okkar.
Vinsamlegast kynnið ykkur skilmála námskeiða.
--------------
Staðsetning: Eiðistorg, Seltjarnarnesi
Fjöldi nemenda: Hámark 8
Lágmarksaldur: 18 ára
Tímasetning: 17:30 - 20:30
Heildarfjöldi tíma: 18 klst.
Kennari: Anna Wallenius
Tungumál: Enska/Íslenska
Innifalið: Kaffi og te. Leir, leirlitir, verkfæri og brennslur.
--------------
Námskeiðin eru styrkhæf hjá stéttarfélögum, bætið við kennitölunni ykkar í körfu.
deila
