Refund policy

 

Endurgreiðslustefna Stúdíó Viktor Breki

Takk fyrir að versla hjá Studio Viktor Breki! Við leggjum okkur fram um að allir viðskiptavinir séu ánægðir með kaupin sín, hvort sem þau eru gerð á netinu eða í verslun. Vinsamlegast kynntu þér endurgreiðslustefnu okkar hér að neðan.


1. Almenn endurgreiðslustefna (Vörur)

Skilyrði fyrir endurgreiðslu:
Ef þú ert ekki fullkomlega ánægð/ur með kaupin þín bjóðum við endurgreiðslu á öllum keramikvörum sem keyptar eru á netinu eða í verslun, að því gefnu að:

  • Varan sé skilað innan 14 daga frá kaupdegi.

  • Varan sé ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum.

  • Framvísað sé sönnun fyrir kaupum (kvittun eða pöntunarstaðfestingu).

Skil á vörum:

  • Netpantanir: Hafðu samband við okkur á netfangið viktorbreki@studioviktorbreki til að hefja skil. Við veitum leiðbeiningar um skilferlið og sendingu vörunnar til baka.

  • Kaup í verslun: Hægt er að skila vörum beint í verslun okkar að Eiðistorgi 13, 170 Seltjarnarnesi. Vinsamlegast taktu vöruna og kvittun með þér.

Endurgreiðsluaðferð:
Endurgreiðslur eru greiddar inn á upprunalega greiðsluleið eða veittar í formi inneignar, eftir aðstæðum og óskum viðskiptavinar.


2. Endurgreiðslustefna námskeiða

Öll námskeið er hægt að afbóka og fá endurgreitt innan 24 klukkustunda frá kaupum.

  • Lengri námskeið:
    Vegna eðlis námskeiðanna er aðeins hægt að veita endurgreiðslu allt að 14 dögum fyrir upphaf námskeiðs og þá í formi gjafakorts.
    13 dögum eða síðar telst skráning bindandi.
    Hins vegar er hægt að framselja sæti til vinar eða fjölskyldumeðlims fyrir upphaf námskeiðs ef þú getur ekki mætt. Greiðslum er þá hagað milli aðila. Vinsamlegast láttu okkur vita hver tekur sætið og gefðu upp netfang viðkomandi.
    Þegar námskeið er hafið er ekki hægt að framselja skráningu.

  • Helgarnámskeið:
    Með 10 daga eða meiri fyrirvara er hægt að fá endurgreitt í formi gjafakorts eða flytja skráningu yfir á annað helgarnámskeið.
    9 dögum eða síðar er skráning bindandi og aðeins mögulegt að breyta nafni þátttakanda.

  • Vín&Leir:
    Með 6 daga eða meiri fyrirvara er hægt að fá endurgreitt í formi gjafakorts eða flytja skráningu yfir á annað námskeið.
    5 dögum eða síðar er skráning bindandi og aðeins mögulegt að breyta nafni þátttakanda.

  • Gjafakort:
    Gjafakort eru ekki endurgreiðanleg og ekki hægt að skipta þeim í reiðufé.
    Þau má nota fyrir bæði vörur og námskeið hjá Studio Viktor Breki og eru þau gild í eitt ár frá útgáfudegi.


3. Skemmdar eða gallaðar vörur

Ef þú færð skemmda eða gallaða vöru, vinsamlegast hafðu samband við okkur innan 7 daga frá móttöku pöntunar til að fá fulla endurgreiðslu eða skipti.

  • Netpantanir: Sendu okkur myndir af skemmdri vöru ásamt pöntunarupplýsingum.

  • Kaup í verslun: Komdu með vöruna og kvittun í verslunina til að fá aðstoð.


4. Skipti á vörum

Við bjóðum skipti á vörum sem eru nýjar og ónotaðar innan 14 daga frá kaupum. Til að skipta vöru, hafðu samband við okkur í tölvupósti eða komdu með vöruna í verslunina.


5. Sendingarkostnaður

Kostnaður við skil á vörum er á ábyrgð viðskiptavinar, nema varan hafi skemmst vegna mistaka flutningsaðila eða póstþjónustu. Í slíkum tilfellum þarf að senda myndir af umbúðum og vörunni.


6. Hafa samband

Ef þú hefur spurningar varðandi endurgreiðslustefnu okkar eða vilt hefja skil eða skipti, hafðu samband við okkur:

Netfang: viktorbreki@studioviktorbreki

Við erum hér til að aðstoða þig og tryggja að upplifun þín hjá Studio Viktor Breki sé sem best.

Með kaupum samþykkir þú þessa endurgreiðslustefnu.
Takk fyrir að velja Stúdíó Viktor Breki.