Skip to product information
1 of 1

4 vikna námskeið frá 12. maí-02 júní. Þriðjudagar & fimmtudagar.

4 vikna námskeið frá 12. maí-02 júní. Þriðjudagar & fimmtudagar.

Regular price 72.900 ISK
Regular price Sale price 72.900 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

Out of stock

Nýtt og spennandi 4 vikna rennslunámskeið þar sem kennt er x2 í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum (7 skipti í heildina).

Námskeiðið hentar öllum færnistigum.

Búast má við afslöppuðu og hlýju andrúmslofti á vinnustofunni þar sem við einblínum á ánægjuna sem fylgir því að breyta leirkúlu í einstakan nytjahlut.

Í upphafi námskeiðsins fer kennarinn yfir grunnatriðin og tæknilega punkta sem hjálpa til við leirvinnu á rennslubekk. Það að miðja leirinn, toga upp veggi og móta form er sérstaklega skoðað í fyrsta tímanum. Eftir það er farið út í afrennslu (trimming), mismunandi aðferðir skreytinga og að lokum glerjun.

Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða vinnu á námskeiðinu. Hvort sem þig langar að búa til draumabollann þinn, prófa þig áfram með vasa og stærri form eða einfaldlega njóta þess að vinna með leir, þá hvetjum við þig til að fylgja eigin sköpunarferli.

Nemendur eru hvattir til að koma með nesti eða eitthvað til að næra sig. Hagkaup er einnig staðsett við hliðina á vinnustofunni.

Í lok hvers tíma tökum við öll þátt í að þrífa vinnustofuna. Nemendur þrífa rennslubekkinn sinn, verkfæri og vatnsfötu. Að lokum förum við nokkrar umferðir yfir gólfið í kringum vinnusvæðið okkar.

Kennsludagar:
Þriðjudagur 12. maí.
Fimmtudagur 14. maí. (Uppstigningardagur)

Þriðjudagur 19. maí.
Fimmtudagur 21. maí.

Þriðjudagur 26. maí.
Fimmtudagur 28. maí.

Þriðjudagur 02. júní.- Glerjun.

--------------

Vinsamlegast kynnið ykkur skilmála námskeiða.

--------------

Staðsetning: Eiðistorg, Seltjarnarnesi

Fjöldi nemenda: Hámark 7

Lágmarksaldur: 18 ára

Tímasetning: Þriðjudagar & fimmtudagar 17:00 - 20:30

Heildarfjöldi tíma: 24.5 klst.

Kennari: Viktor Breki

Innifalið: Kaffi og te. Leir, leirlitir, verkfæri og brennslur. 

--------------

Námskeiðin eru styrkhæf hjá stéttarfélögum.

View full details